Sport

Silja komst ekki í úrslit

Silja Úlfarsdóttir féll úr leik í 400 metra grindarhlaupi á bandaríska háskólameistaramótinu í frjálsum íþróttum í Sacramento í nótt. Silja varð í 12. sæti í undanúrslitum þegar hún kom í mark á 57,78 sekúndum sem er hennar annar besti tími í greininni. Sigrún Fjeldsted, sem keppti í spjótkasti, varð í sjötta sæti, en hún kastaði 47,75 metra í úrslitum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×