Sport

Markalaust hjá Perú og Úrúgvæ

Perú og Úrúgvæ gerðu í gærkvöld markalaust jafntefli í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Úrúgvæ er í 5. sæti í riðlinum en Perúmenn í 8. sæti. Í kvöld mætast efstu liðin í riðlinum, Brasilía og Argentína. Leikur liðanna, sem sýndur verður beint á Sýn, hefst rúmlega hálf eitt í nótt. Argentínumenn eru í efsta sæti með 28 stig en Brasilíumenn stigi á eftir í öðru sæti. Leikurinn í kvöld fer fram á heimavelli River Plate í Aregentínu en það lið sem sigrar í kvöld er öruggt með sæti í heimsmeistarakeppninni sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári. Brasilíumenn unnu fyrri leik liðanna með þremur mörkum gegn einu. Argentínumenn unnu síðast sigur á Brasilíumönnum í undankeppni heimsmeistaramótsins fyrir fjórum árum. Klukkan átta verður leikur Finna og Hollendinga sýndur á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×