Fjöldi Íslendinga í Andorra 29. maí 2005 00:01
Á mánudagskvöldið verða smáþjóðaleikarnir settir í Andorra þar sem keppnin fer fram í ár. 126 íslenskir keppendur halda utan í dag ásamt fylgdarliði. Íslenska keppnisliðið á harma að hefna, eftir að hafa hlotið flest verðlaun á leikunum nokkur skipti í röð, urðu þeir að láta í minni pokann fyrir tveimur árum á Möltu, er leikarnir fóru síðast fram. Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ, er fararstjóri íslenska hópsins og segir hún undirbúninginn hafa gengið vel. „Við vorum með undirbúningsfund á þriðjudaginn þar sem meira en 100 keppendur, farar- og flokkstjórar mættu. Þar voru aðstæður kynntar og það sem bíður okkar ytra. Það var einstaklega góð stemmning í hópnum og hefur undirbúningur keppenda gengið vel," segir Sigríður. Að sögn hennar senda tíu sérsambönd 126 þátttakendur til leiks í 12 íþróttagreinum. Meðal keppenda eru til að mynda keppnislið í strandblaki karla sem verður að teljast fremur ný íþrótt hér á landi. „Þetta er íþrótt sem hefur notið sífellt meiri vinsælda. Það sýndi sig til dæmis á síðustu ólympíuleikum hversu vinsæl sjónvarpsíþrótt þessi grein er." Íslenski hópurinn flýgur í dag til Barcelona þar sem rútur munu flytja mannskapinn til fjallríkisins Andorra og tekur það ferðalag um þrjár klukkustundir. Hópurinn nýtir sér mánudaginn til að koma sér fyrir og kynna sér aðstæður áður en setningarathöfnin hefst um kvöldið. Keppni hefst á þriðjudagsmorguninn og stendur yfir til laugardagsins þegar mótinu verður slitið. „Að sjálfsögðu setjum við stefnuna á að vinna til flestra verðlauna. Við vitum þó að það eru nokkrir sterkir keppendur sem ekki verða með, Örn Arnarson á við meiðsli að stríða og okkar bestu hlaupadrottningar eru að keppa á alþjóðlegum mótum annars staðar," sagði Sigríður. Íslensku körfuboltalandsliðin ætla sér einnig stóra hluti og setja stefnuna á sigur bæði í karla- og kvennaflokki. Hannes Jónsson er fararstjóri körfuboltahópsins.„Undirbúningurinn hefur gengið vel. Landsliðið kom saman fyrir þremur vikum en kvennalandsliðið hefur verið viku lengur saman," sagði Hannes. Ekki eru allir okkar körfuboltamenn í landsliði karla og segir Hannes það miður. „Já, það er auðvitað leiðinlegt. En engu að síður ætlum við okkur stóra hluti." Landslið kvenna hefur leik strax á þriðjudag og lýkur keppni tveimur dögum síðar en karlarnir byrja á miðvikudag og keppa alveg fram á lokadag mótsins.
Íþróttir Mest lesið Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Golf Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Sport Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Íslenski boltinn Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Sport Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Fótbolti Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski boltinn Sænskur landsliðsmaður vill verða Rússi Sport Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Enski boltinn Fleiri fréttir „Auðvitað skoraði Orri, hann skorar alls staðar“ FH leysir loks úr markmannsmálunum Orri Steinn með tvennu í Japan Sádarnir spenntir fyrir Antony Sjáðu stoðsendingar Öglu, hetjudáðir Fanndísar og Birgittu refsa grimmt Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Sjáðu glatað skot breytast í skallamark og Tryggva tryggja jafntefli Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Dagskráin: Fyrstu Bestu mörkin eftir EM, formúla, píla og golf Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Sænskur landsliðsmaður vill verða Rússi „Okkur fannst þetta ekkert öðruvísi en aðrir leikir” Þurfa að breyta leiðinni í Tour de France vegna smitfaraldurs Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Andrea Rán semur við FH Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Uppgjör: Breiðablik-Þróttur 3-1 | Blikakonur unnu toppslaginn Uppgjör: Valur-FHL 2-1 | Fanndís hetja Valskvenna Uppgjörið: Vllaznia - Víkingur 2-1 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik hjá Víkingi Uppgjör: Tindastóll-Þór/KA 2-0 | Tindastóll byrjar vel eftir EM-frí Neymar reifst við áhorfenda eftir leik Hilmir Rafn fullkomnaði markaveislu Viking Uppgjörið: Kauno Zalgiris - Valur 1-1 | Ævintýralegt glópalán Valsmanna Sjá meira