Niður úr krana eftir rúma tvo daga 28. maí 2005 00:01
Bandarískur ógæfumaður um fertugt flúði lögregluna upp í 50 metra háan byggingakrana. Það tók meira en tvo sólarhringa að ná honum niður. Það var á miðvikudagskvöld að Carl Edward Roland kleif kranann sem er fyrir ofan fjölfarið hverfi í borginni Atlanta. Fyrr um daginn hafði lögregla gefið út handtökuskipun á hendur honum vegna gruns um að hann hefði myrt fyrrverandi kærustu sína sökum afbrýði. Þar til í mars síðastliðnum var hann sölumaður í tölvuverslun en þá sagði hann upp og var úrskurðaður gjaldþrota. Þá skuldaði skattinum og kreditkortafyrirtækjum á aðra milljón íslenskra króna. Þessi raunasaga Rolands og flótti hans upp í kranann vakti mikla athygli, umferðartafir sköpuðust og áttu eigendur veitingastaða í nágrenni kranans í mesta basli með að anna þeim fjölda viðskipavina sem þusti að til að fylgjast með Roland í krananum og aðgerðum lögreglunnar yfir máltíð. Roland var þó án matar og drykkjar í þær 56 klukkustundir sem liðu þar til lögreglu tókst að yfirbuga hann með rafmagnsbyssu. Þegar hann hafði fast land undir fótum var honum ekið beint í steininn.
Erlent Fréttir Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira