Vantar tvöfalt meira fé í Darfur 27. maí 2005 00:01
Nærri þrjú hundruð milljónum dollara hefur verið lofað til hjálparstarfa í Darfur-héraði í Súdan en það er aðeins helmingur þess sem þarf til að forða milljónum frá því að svelta. Enn herja skæruliðasveitir á óbreytta íbúa héraðsins. Það er liðið rúmt ár frá því að hörmungarnar í Darfur komust í hámæli og síðan þá hefur verið unnið að því að finna einhvers konar lausn. Friðargæsluliðar á vegum Afríkusambandsins hafa verið við störf en þeir skipta aðeins fáeinum þúsundum, sem er eins og dropi í hafið á svæði sem er stærra en Frakkland. Afríkusambandið vill fjölga friðargæsluliðunum og hefur beðið Vesturlönd um aðstoð sem hefur gengið illa að fá. Í gær og morgun var lofað á þriðja hundrað milljónum dollara alls sem er þó rétt um helmingur þess sem þarf. Hluta fjárins hafði í raun verið lofað áður svo að upphæðin er líkast nærri 200 milljónum. Leitað hefur verið liðsinnis NATO við að flytja friðargæslusveitir og birgðir á svæðið. Því hefur verið vel vekið en engin ákvörðun liggur þó enn fyrir. Á meðan berast fregnir af linnulausum aðgerðum súdanskra hermanna og janjaweed-skæruliðasveita tengdum hernum. Hermt er að óbreyttir borgarar verði fyrir barðinu á þeim en nú þegar hafa á milli 200 og 300 þúsund manns týnt lífi í Darfur. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir víst að þeir skipti milljónum sem ekki muni lifa af komi ógnaröldin í veg fyrir að fólk geti plantað fræjum sér til nauðþurfta. Bregðist uppskera næsta árs sé víst að neyðaraðstoð þurfi til að koma í veg fyrir að milljónir manna í Darfur-héraði farist úr hungri.
Erlent Fréttir Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Sjá meira