Efni gerir drengi kvenlegri 27. maí 2005 00:01
Efni sem notað er í plastpoka, leikföng og snyrtivörur hefur alvarleg áhrif á þroska drengja í móðurkviði. Efnið veldur því að kynfæri þroskast ekki eðlilega og drengirnir verða kvenlegri. Það var hópur bandarískra vísindamanna sem komst að þessari niðurstöðu sem vakið hefur mikla athygli. Lengi hefur verið vitað að efnið, sem nefnist talöt, veldur kynbrenglun hjá dýrum. Kynfæri þroskast ekki eðlilega og dæmi eru um að dýr skipti um kyn sé hátt magn efnisins í umhverfi þeirra. Önnur karldýr fá einkenni kvendýra og gæði sæðis þeirra minnkar. Efnið er gerviefni en bygging þess er ekki ólík hormóni sem er talið geta valdið áhrifunum. Rannsókn bandarísku vísindamannanna bendir til þess að lítið magn efnisins, sem finnst út um allt í daglegu lífi fólks, nægi til að hafa áhrif á þróun kynfæra drengja í móðurkviði. Mælt var magn efnisins í þvagi verðandi mæðra og borið saman við mælingar á afkvæmum þeirra. Miklar líkur voru á því að synir kvenna með hátt magn ákveðinna undirgerða efnisins í þvagi fæddust með kvenleg einkenni, svo sem minni typpi, eistu þeirra voru ekki gengin niður auk þess sem bilið á milli kynfæranna og endaþarmsopsins var stutt en það er annað merki kvenleika. Hver áhrifin verða á drengina þegar þeir verða fullvaxta er ekki ljóst en hjá dýrum hefur þetta leitt til ófrjósemi, lægra testósterónstigi og afbrigðilegra eistna. Vísindamenn segja að efnið hafi áhrif á öll karlmennskuneinkenni: árásargirni, hegðun viðkomandi sem foreldri og jafnvel námshæfni. Nú er unnið að því að rannsaka hvernig efnið berst í líkamann en vitað er að matur sem vafinn er inn í plast drekkur það í sig. Vísindamennirnir segja einnig frekari rannsókna þörf til að staðfesta niðurstöður sínar.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira