Ávarps Chiracs vakti litla lukku 27. maí 2005 00:01
Jacques Chirac, forseti Frakklands, gerði í gærkvöldi örvæntingafulla tilraun til að sannfæra landa sína um að styðja stjórnarskrá Evrópusambandsins. Ávarpið þótti ömurlegt. Heldur syrtir hins vegar í álinn í Frakklandi þar sem hlutfall þeirra sem hyggjast greiða atkvæði gegn stjórnarskrá Evrópusambandsins hefur hækkað um fimm prósentustig í þessum mánuði. Jacques Chirac hélt sjónvarpsávarp í gærkvöldi í von um að telja kjósendum hughvarf en í ljósi þess að afstaða kjósenda litast ekki síst af vilja til að refsa Chiracs verður að telja að hann hafi talað fyrir heldur daufum eyrum. Leiðarahöfundur dagblaðsins La Liberation segir það hafa verið ömurlegt að horfa upp á Chirac reyna að bjarga sér frá klúðrinu sem hann beri sjálfur ábyrgð á. Hafni Frakkar stjórnarskránni er hún andvana fædd en það þýðir ekki að stjórnmálamenn um alla álfuna leiti ekki leiða til að bjarga henni. Chirac hvetur meðal annars aðrar Evrópuþjóðir til að greiða samt sem áður atkvæði um stjórnarskrána enda vill hann ekki að litið verði svo á að Frakkar einir stöðvi framgöngu málsins. Það setur bresku stjórnina í klípu því að Tony Blair vonaðist til þess að höfnun í Frakklandi þýddi að Bretar þyrftu ekki að kljást við stjórnarskránna og efna til þjóðaratkvæðagreiðslu. Efri deild þýska þingsins samþykkti hins vegar í morgun stjórnarskrána eins og búist hafði verið við. Allir meginstjórnmálaflokkar Þýskalands höfðu lýst stuðningi við stjórnarskránna.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira