Erlent

Reyndu að bera klæði á vopnin

Leiðtogar rétttrúnaðarkirkjunnar settust í gær á rökstóla í Istanbúl, hinni fornu höfuðborg aust-rómverska keisaradæmisins, og reyndu að leysa þann djúpstæða ágreining sem ríkir í orþódoxu kirkjunni í Ísrael. Slíkir fundir eru frekar sjaldgæfir og sýnir hann því hversu alvarleg deilan er. Forsaga málsins er sú að Íreneus I, patríarki í Jerúsalem, lánaði kirkjumuni til gyðinga í Austur-Jerúsalem. Samstarfsmenn hans brugðust ókvæða við þar sem vitað var að Palestínumönnum myndi gremjast lánið og kröfðust afsagnar Íreneusar. Hann neitaði hins vegar að láta af embætti og því er allt í hnút.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×