Erlent

Létust í umferðarslysi á Írlandi

Fimm skólastúlkur létu lífið í árekstri skólabíls og tveggja fólksbíla á Írlandi í gær. Alls voru 50 börn í rútunni og eru sex þeirra talin lífshættulega slösuð en einungis eitt barn slapp óslasað úr skólabílnum sem valt á hliðina. Lögreglan segir að stúlkurnar sem létust hafi verið á aldrinum þrettán til sextán ára en orsök slyssins eru ekki kunn þó mikil rigning hafi eflaust átt sinn þátt í að slysið hafi orðið. Tíðni umferðarslysa á Írlandi er ein sú hæsta í Evrópu en þetta slys er þó það versta í landinu í rúmt ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×