Erlent

Starfsmenn BBC í verkfalli

Ellefuþúsund frétta- og tæknimenn breska ríkisútvarpsins BBC lögðu niður störf í sólarhring í gær til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði og einkavæðingu hluta stofnunarinnar. Til stendur að segja upp um 4 þúsund starfsmönnum og spara með því móti rúmlega 350 milljónir pund árlega. Starfsfólkið ætlar að láta hart mæta hörðu og hótar nú tveggja daga verkfalli um mánaðamótin ef niðurskurðinum verður ekki aflýst. Í gær voru endurflutningar allsráðandi á öllum rásum BBC og einungis örfá stutt fréttaskot flutt þegar nauðsyn þótti krefja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×