Hart sótt að Schröder 13. október 2005 19:15
Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders, kanslara, beið afhroð í fylkiskosningum í Nordrhein-Westfalen á sunnudaginn en flokkurinn hefur haldið þar um stjórnartaumana síðan 1966. Flokkurinn fékk einungis 37,2 prósent atkvæða á meðan kristilegir demókratar, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, hlaut 44,9 prósent atkvæða. Nordrhein-Westfalen er fjölmennasta fylki Þýskalands með rúmlega átján milljónir íbúa og tapið því mikið áfall fyrir kanslarann. Schröder hefur boðað til þingkosninga í haust, ári áður en kosningar voru upphaflega áformaðar. Áður en að þeim kemur verður efnt til atkvæðagreiðslu í sambandsþinginu um traust til ríkisstjórnarinnar en Franz Müntefering, formaður Jafnaðarmannaflokksins, lýsti þessu yfir í gær. Er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram áður en neðri deild þingsins fer í sumarfrí 1. júlí næstkomandi. Ef þingið fellir tillöguna hefur Horst Köhler, forseti Þýskalands, þrjár vikur til að rjúfa þing og síðan verður að halda nýjar kosningar innan sextíu daga. Þessari aðferð beitti Helmut Kohl árið 1983 með þeim árangri að andstæðingar hans biðu afhroð í kosningunum sem á eftir komu. Eflaust vonast Schröder eftir viðlíka niðurstöðum. Skoðanakannanir benda til að kristilegir demókratar séu líklegir til þess að velta stjórn Schröders úr sessi. Formaður þeirra, Angela Merkel, prestsdóttir frá gamla Austur-Þýskalandi, gæti þannig orðið fyrsti kvenkanslari Þýskalands. Schröder hefur legið undir ámæli heima fyrir vegna bágs efnahagsástands. Atvinnuleysi er talsvert í landinu, er nú rétt um tólf prósent. Nú þegar hefur flokkur Schröders boðað róttækar umbætur í efnahagslífinu fái hann áframhaldandi umboð kjósenda og er það tilraun til þess að sannfæra almenning um að til standi að bæta ástandið. Flokkur Schöders er í ríkisstjórnarsamstarfi við græningja, flokk utanríkisráðherrans Joscha Fischer, en sá flokkur hefur einnig tapað miklu fylgi á yfirstandandi kjörtímabili. Fischer er þó sannfærður um að þeim takist að vinna aftur traust kjósenda í kosningabaráttu.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira