Erlent

N-Kóreumenn við samningaborðið

Norður-Kórea hefur staðfest að hafa átt í viðræðum við Bandaríkin um kjarnorkuvopnaframleiðslu. Vonast til að viðræðurnar geti leitt til þess að Norður-Kórea hætti við áform sín um að hefja framleiðslu á slíkum vopnum. Lönd í kringum Norður-Kóreu hafa verið áhyggjufull að undanförnu yfir því að Norður-Kóreumenn hefji prófanir á kjarnorkuvopnum en yfirvöld í Pyongyang hafa lýst því yfir vilja til þess. Of snemmt er að segja til um hver niðurstaða fundanna er en þeirra má eflaust vænta á næstu dögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×