Erlent

Hollendingar á móti ESB-sáttmála

Í það virðist stefna að hollenskir kjósendur hafni stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins með öruggum meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu 1. júní næstkomandi. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem gerð var fyrir RTL-sjónvarpsstöðina og birtar voru í gær hyggjast 54 prósent Hollendinga hafna sáttmálanum. Aðeins 27 af hundraði eru ákveðin í að greiða atkvæði með staðfestingu hans. Aðrar skoðanakannanir hafa bent til álíka mikils forskots andstæðinga sáttmálans. Þjóðaratkvæðagreiðslan er ekki bindandi en hollenska þingið hefur sagst munu hafa niðurstöðu hennar til hliðsjónar þegar það greiðir atkvæði um fullgildinguna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×