Erlent

Hermannaveiki á norsku sjúkrahúsi

Staðfest var í gær að banamein þriggja aldraðra sjúklinga á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi hefði verið hermannaveiki. Á fréttavef Aftenposten kemur fram að alls hafi 21 sjúklingur á sjúkrahúsinu smitast af sjúkdómnum svo vitað sé. Enn fremur hefur verið tilkynnt um tvö hermannaveikitilfelli á öðrum norskum sjúkrahúsum. Báðir voru þessir sjúklingar nýlega í Fredrikstad eða nágrenni. Smituppsprettunnar er ákaft leitað og hefur verið gripið til ráðstafana með það fyrir augum að fyrirbyggja frekara smit.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×