Erlent

Samherji Saddams látinn laus

Yfirvöld í Írak hafa látið lausan úr fangelsi einn þeirra manna sem voru háttsettir í stjórn Saddams Husseins á sínum tíma. Að sögn íraska innanríkisráðherrans er maðurinn, Ghazi Hammud al-Obeidi, dauðvona vegna magakrabbameins. Al-Obeidi var héraðsstjóri í suður-írösku borginni Kut og háttsettur í Baath-flokki Saddams. Hann er sá fyrsti úr hópi þeirra 55 manna úr innsta hring Saddamstjórnarinnar sem hernámsyfirvöld lögðu mesta áherslu á að handsama, sem látinn hefur verið laus. Af 55 manna listanum ganga ellefu enn lausir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×