Karzai krefst refsinga 21. maí 2005 00:01
Hamid Karzai, forseti Afganistans, krafðist þess í gær að Bandaríkjaher gengi hart fram í að draga þá liðsmenn hersins til ábyrgðar sem gerst hefðu sekir um að misþyrma föngum í Afganistan. The New York Times birti á föstudag upplýsingar sem lekið var úr tvö þúsund síðna skýrslu um rannsókn á ásökunum um fangamisþyrmingar í aðalherstöð Bandaríkjahers í Afganistan. Svo vildi til að sama dag lagði Karzai Afganistanforseti upp í fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Er hann ávarpaði blaðamenn á Kabúlflugvelli hét hann því að ræða málið við bandaríska ráðamenn. Hann sagðist líka mundu krefjast þess að aðgerðir Bandaríkjahers í landinu sættu meira eftirliti, ekki síst skyldi bundinn endi á að bandarískir hermenn réðust inn á heimili manna og handtækju án þess að tilkynnt væri um aðgerðirnar til afgönsku stjórnarinnar. Í grein New York Times um illa meðferð bandarískra hermanna á afgönskum föngum í herstöð Bandaríkjamanna við Bagram-flugvöll norður af Kabúl er vitnað í trúnaðarupplýsingar úr skýrslu rannsóknarnefndar sem rannsakaði ásakanirnar. Efnt var til rannsóknarinnar eftir dauða tveggja fanga þar í desember 2002. "Mér ofbýður gersamlega. Við fordæmum þetta. Við viljum að Bandaríkjastjórn grípi til mjög afgerandi ráðstafana til að sjá til þess að slíkir menn starfi ekki í herliði hennar í Afganistan," tjáði Karzai blaðamönnum en tók fram að glæpsamlegar gerðir þessara hermanna sem í hlut ættu skyldu ekki verða landsmönnum hans tilefni til að draga þá ályktun að allir Bandaríkjamenn væru slæmir. "Íbúar Bandaríkjanna eru vænsta fólk," sagði hann. Trent Duffy, talsmaður Hvíta hússins, sagði að George W. Bush Bandaríkjaforseti væri hneykslaður á hinum meintu fangamisþyrmingum og vildi að vandleg rannsókn færi fram. Duffy sagði að rannsóknin beindist nú einkum að sjö sakborningum sem þjónað hefðu í Bagram-herstöðinni.
Erlent Fréttir Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira