Erlent

Saddam í mál við The Sun

Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, hefur ákveðið að fara í mál við breska götublaðið The Sun sem birti myndir af honum á nærklæðunum og í baðsloppi í fangaklefa sínum. Lögfræðingur Saddams segir að allir sem komu að myndbirtingunni verði sóttir til saka en forsvarsmenn Sun segjast ekkert óttast og boða fleiri myndir af Saddam. Myndirnar hafa vakið hörð viðbrögð og telur Alþjóða Rauði krossinn þær brjóta gegn Genfarsáttmálanum um mannréttindi fanga. Sumir Írakar segja þær móðgun við arabaheiminn en aðrir segja þær sýna þá niðurlægingu sem Saddam eigi skilið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×