Erlent

Skar liminn af eiginmanninum

Kona á Indlandi skar getnaðarliminn af eiginmanni sínum í gærkvöldi eftir að hann hafði komið drukkinn heim með vændiskonu undir arminum. Hún sætti færis þegar eiginmaðurinn sofnaði værum svefni eftir kvöldskemmtunina, batt hann á höndum og fótum og skar svo hans allra heilagasta af með eldhúshníf. Konan kvaðst einfaldlega vera búin að fá nóg af kvennamálum og drykkju eiginmannsins en hjónin hafa verið gift í tíu ár og eiga fjögur börn. Læknum tókst að festa liminn aftur á manninn en segja of snemmt að segja til um hvort virknin á svæðinu verði aftur sú sama.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×