Erlent

Efnavopna-Ali á baðsloppnum

Myndir sem birtar voru af Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, á nærklæðunum einum fata í breska götublaðinu The Sun í gær hafa vakið hörð viðbrögð. Nýjar myndir voru birtar í blaðinu í dag sem meðal annars sýna einn nánasta samstarfsmann Saddams, Ali Hassan al-Majid, betur þekktan sem „Efnavopna-Ali“, í baðslopp haldandi á handklæði. Sumir Írakar hafa gagnrýnt myndirnar og sagt þær móðgun við arabaheiminn og Íslam en aðrir segja þær einvörðungu sýna þá niðurlægingu sem Saddam Hussein og félagar hans eigi skilið. Alþjóða Rauði krossinn telur að myndin af leiðtoganum fyrrverandi brjóti gegn rétti hans til einkalífs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×