Þrýstingur eykst á Karimov 20. maí 2005 00:01
Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið bættust í gær í lið með Sameinuðu þjóðunum um að þrýsta á ráðamenn Úsbekistans að heimila alþjóðlega rannsókn á því sem gerðist er mikill fjöldi mótmælenda féll fyrir byssukúlum öryggissveita í bænum Andijan í austurhluta landsins fyrir viku. Ríkisstjórnin hvikaði hins vegar hvergi frá andstöðu sinni við slíka rannsókn og einbeitti sér þess í stað að því að elta þá uppi sem hún grunar um að hafa tekið þátt í uppþotunum. Viku eftir hina umdeildu atburði bættist Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, í hóp þungavigtarmanna á alþjóðavettvangi sem krafist hafa slíkrar rannsóknar. Hann sagðist hafa orðið fyrir "miklum vonbrigðum" með að Islam Karimov, forseti Úsbekistans, hefði hafnað kröfu Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um óháða rannsókn á atburðunum. "Ég ítreka áskorun mína um að stjórnvöld í Úsbekistan fallist á þessa rannsókn," sagði Scheffer. Búist er við því að utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykki á mánudaginn ályktun þar sem krafist er rannsóknar og stjórnvöld í Úsbekistan eru fordæmd fyrir óhóflega valdbeitingu. Frá þessu greindi Cristina Gallach, talsmaður Javiers Solana, utanríkismálastjóra sambandsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira