Erlent

Norræni skálinn vinsæll

Norræni skálinn á EXPO 2005, heimssýningunni í Japan, hefur verið mjög vinsæll síðan hann var formlega opnaður 25.mars síðastliðinn. Gestur númer 500 þúsund kom í skálann nú fyrir skemmstu, en það voru tvær systur, Ayane Shigemori 9 ára og Yuko Shigemori 7 ára, sem voru verðlaunaðar fyrir það. Þær fengu margvíslegan varning sem var til sölu í skálanum. Aðsókn að heimssýningunni var frekar lítil til þess að byrja með en algjör sprenging hefur orðið á heimsóknum í maí. Norræni skálinn hefur vakið mikla athygli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×