Erlent

Lögregla skaut mann á götu úti

Lögreglumaður í bænum Larvik í Noregi skaut víetnamskan mann til bana í gær. Atburðurinn gerðist á aðalgötu bæjarins. Lögreglan fékk tilkynningu um að maður vopnaður kjötöxi ógnaði fólki í miðbæ Larvíkur og sendi menn á vettvang. Þeir reyndu að afvopna manninn en án árangurs. Þegar einum lögreglumanninum fannst sér ógnað greip hann til þess óyndisúrræðis að skjóta á manninn, með þeim afleiðingum að hann lést. Lögreglumaðurinn á það á hættu að verða ákærður fyrir manndráp af gáleysi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×