Erlent

Blair heitir þjóðaratkvæði

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir í gær að breskir kjósendur myndu fá tækifæri til að greiða atkvæði um staðfestingu stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins, óháð því hver dómur franskra kjósenda verður um málið. Atkvæðagreiðslan í Frakklandi fer fram 29. þessa mánaðar og samkvæmt skoðanakönnunum eru fylkingar fylgjenda og andstæðinga sáttmálans hnífjafnir. Hreyfing breskra andstæðinga sáttmálans hóf í gær formlega baráttu fyrir því að Bretar hafni honum í hinni boðuðu þjóðaratkvæðagreiðslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×