Erlent

Ítalskur hjálparstarfsmaður á lífi

Ítalskur hjálparstarfsmaður, sem rænt var í Kabúl í Afganistan á mánudaginn var, er á lífi. Frá þessu greindu afgönsk yfirvöld í dag. Mannræningjarnir höfðu samband við yfirvöld í gær og fékk hin 32 ára Clementina Cantoni, sem er í Afganistan á vegum alþjóðlegu hjálparsamtakanna CARE, að greina frá því í símann að ekkert amaði að henni. Talsmaður afganska innanríkisráðuneytisins sagði mannræningjana ekki tilheyra uppreisnarhópum talibana eða al-Qaida en neitaði að öðru leyti að tjá sig um hverjir þeir væru. Þá vildi hann ekki heldur gefa upp hvers ræningjarnir hefðu krafist en sagði að ekki yrði orðið við kröfum þeirra. Yfirvöld telja að Cantoni sé enn í Kabúl og eru vongóð um að henni verði sleppt fljótt, en komið hefur verið upp vegatálmum í kringum borgina til þess að koma í veg fyrir að Cantoni verði smyglað út úr henni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×