Enginn veit hvað er að gerast 13. október 2005 19:12
Algjör ringulreið er í Úsbekistan eftir að hersveitir skutu á mótmælendur og meintir íslamskir öfgamenn slepptu hundruðum fanga úr fangelsi. Fjölmiðlar í landinu senda út skemmtidagskrá og enginn virðist vita með vissu hvað er að gerast. Atburðarásin hófst í morgun þegar að hópur uppreisnarmanna réðst inn í fangelsi í bænum Andijan og hjálpaði félögum sínum þar að brjótast út. Þar voru á ferð meintir íslamskir öfgamenn sem hertóku í kjölfarið lögreglustöðina í bænum. Nokkrir lögreglumenn voru í gíslingu þeirra og fregnir hafa borist af átökum. Byssugelt hefur heyrst, byggingar brunnið og vegatálmar voru settir upp á götum sem liggja að miðborginni. Skömmu síðar þustu nokkur þúsund manns út á götur Andijan til að sýna stuðning sinn við uppreisnarmennina. Hersveitir mættu á svæðið og skutu á mannfjöldann sem flýði í ofboði. Fréttaritarar sáu lík á vettvangi. Sumir mótmælendanna kröfðust afsagnar forseta landsins, Islams Karimovs, sem hefur sætt harðri gagnrýni fyrir einræðistilburði og að virða mannréttindi að vettugi. Rót ólgunnar virðist í það minnsta að hluta mega rekja til þess að hann hefur skipað fyrir um handtökur þeirra sem ekki fylgja ríkisútgáfunni af íslamskri trú. Nokkur fjöldi kaupsýslumanna hefur til að mynda verið handtekinn fyrir að fjármagna verk meintra íslamskra hryðjuverkamanna. Rússneskar fréttastofur greindu frá því síðdegis að áhlaup hersins á bæinn væri yfirvofandi. Ólgan er bundið við austurhluta landsins, við Andijan, en fregnir af atburðunum hafa verið litlar og engar innanlands. Erlendar fréttastöðvar voru teknar úr loftinu og innlent skemmtiefni sett í staðinn og allar upplýsingar sem sendar eru út koma frá stjórnvöldum.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira