Flóttinn mikli 12. maí 2005 00:01
Forsagan að því að um 250.000 þýzkir flóttamenn, þar af um 100.000 börn, lentu í Danmörku vorið 1945 er sú, að eftir því sem sókn Rauða hersins náði lengra inn í Þýzkaland - fyrst Austur-Prússland og svo Slésíu, Pommern og Berlín - flúðu fleiri þýzkir íbúar þessara svæða í ofboði, enda gengu miklar sögur um grimmdarlegar hefndaraðgerðir sovézkra hermanna á þeim Þjóðverjum sem þeir náðu til. Öll börn undir fjórtán ára aldri voru send frá stærstu borgunum. Mörg þeirra enduðu uppi í Danmörku. Í marz 1945 var svo komið, að þeir Þjóðverjar sem flúðu úr austri komust ekki lengur landleiðina í vestur þar sem Sovétherinn var kominn alla leið norður að Eystrasaltsströndinni. Flóttamennirnir voru því fluttir í öllum tiltækum skipum og bátum yfir Eystrasaltið. Yfir tvær milljónir manna, mest konur, börn og gamalmenni en einnig særðir hermenn, flúðu þannig sjóleiðina í vestur. Flóttaskipunum var stefnt á hafnir vestar í Þýzkalandi, sem enn voru á valdi Þjóðverja, svo sem Lübeck og Rostock. Þegar hafnirnar yfirfylltust og skipin urðu fyrir loft- og kafbátaárásum - sem sökktu sumum þeirra - var brugðið á það ráð að skila flóttamönnum í land í Danmörku. Af þeim um það bil 100.000 þýzku börnum sem örlögin höfðu þannig skolað til Danmerkur þegar fimm ára hernámi Þjóðverja lauk snemma í maí 1945 voru um 10.000 munaðarlaus eða höfðu orðið viðskila við foreldra sína. Á flóttanum höfðu þau mörg hver orðið fyrir hræðilegri lífsreynslu, svo sem séð foreldra sína skotna. Einnig voru í þessum hópi heilu skólabekkirnir, sem foreldrarnir vissu ekki hvað hefði orðið um. Bráðabirgðastjórnin, sem settist að völdum í Kaupmannahöfn strax eftir stríðið, lét setja alla þýzku flóttamennina í búðir, þar sem þeir dvöldu unz hægt var að senda þá til Þýzkalands, en það gerðist í flestum tilvikum á næstu tveimur til fjórum árum eftir stríðslokin.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira