Hitti aðalandstæðing Pútíns 10. maí 2005 00:01
Það þykir táknrænt og segja meira en mörg orð um minnkandi velvild í garð Pútíns Rússlandsforseta að Bush Bandaríkjaforseti fór beint frá hátíðarhöldunum á Rauða torginu í gær til Georgíu að heimsækja einn höfuðandstæðing Pútíns. Það fór svo sem ágætlega á með þeim Bush og Pútín í gær enda hafa þeir alltaf verið góðir vinir. Allir vita hins vegar að undir niðri kraumar vaxandi óánægja, óánægja Bandaríkjastjórnar með sívaxandi einræðistilburði Pútíns og harkalegar aðgerðir í Tsjetsjeníu og óánægja Pútíns með að fá ekki óáreittur að hegða sér eins og Bandaríkjastjórn gagnvart meintum hryðjuverkamönnum í sínum eigin bakgarði. Hermarsarnir voru vart þagnaðir á Rauða torginu í gær þegar Bush hoppaði upp í þotu og flaug yfir til Georgíu til að hitta þar leiðtoga lýðræðislegu borgarabyltingarinnar fyrir hálfu öðru ári og núverandi forseta Saakashvílí. Saakashvílí og Pútín elda saman grátt silfur. Eduard Shevardnadze, sem var hrakinn frá völdum í byltingunni, var sérstakur bandamaður Rússa en Saakashvílí er menntaður í Bandaríkjunum og hallar sér meira í vesturátt en til Rússlands. Bush sagði í ávarpi sínu í Tíblisi að hann og kona hans Laura hefðu verið í nágrenninu og hefði fundist rétt að heilsa upp á Georgíumenn. Það vakti athygli að Bush lék á alls oddi í þessari heimsókn, dansaði fyrir gestgjafana og Lauru spúsu sína og hnykkti mjöðmunum til og frá. Þá lýsti hann yfir eindregnum stuðningi við Saakashvílí og sagðist meðal annars myndu styðja inngöngu Georgíu í Atlantshafsbandalagið. Ýmsir andstöðuhópar nýttu sér athyglina sem beindist að Bush. Pólitískir andstæðingar Saakashvílís lágu ekki á sinni skoðun og flóttamenn frá Tsjetsjeníu biðluðu til Bush að skerast í leikinn þar.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira