Gætti þess að styggja ekki Rússa 10. maí 2005 00:01
George Bush, Bandaríkjaforseti, sýndi af sér kæti og dansaði fyrir gestgjafa sína í opinberri heimsókn til Georgíu. Hann hældi þarlendum stjórnvöldum á hvert reipi en passaði sig þó á því, að reita ekki Rússa til reiði. „Ljósgeisli lýðræðis“ var lýsing Bush á Georgíu sem fyrir einu og hálfu ári gekk í gegnum friðsamlega borgarabyltingu, rósrauðu byltinguna svokölluðu, sem varð til þess að Míkhaíl Saakashvílí var settur forseti í stað Edvards Shevardnadzes. Þessi umskipti í Georgíu voru Pútín og rússneskum stjórnvöldum ekki að skapi enda var Shevardnadze bandamaður þeirra fyrst og fremst en nýi forsetinn Saakashvílí er menntaður í Bandaríkjunum og hallar sér meira að Vesturlöndum en Rússlandi. Það þótti því táknrænt að Bush Bandaríkjaforseti héldi beint frá Moskvu og hátíðarhöldunum á Rauða torginu í gær í heimsókn til Saakashvílís í Tíblisi. Ekki virtist Bush leiðast í heimsókninni því hann tók dansspor fyrir gestgjafana á danssýningu sem honum og Lauru forsetafrú var boðið á og sagði hann að Georgíumenn ættu sér sterkan bakhjarl í Bandaríkjunum. Hann sagði jafnframt að Bandaríkjastjórn myndi styðja inngöngu Georgíu í Atlantshafsbandalagið. Þrátt fyrir þetta var Bush varkár í orðalagi og lét fréttamenn ekki draga sig í það að gera upp á milli Georgíu og Rússlands sem nú eiga í hatrömmum deilum um framtíð tveggja rússneskra herstöðva í landinu. Georgíustjórn vill loka þeim og senda rússnesku hermennina heim en það er Rússum síst að skapi.
Erlent Fréttir Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Sjá meira