Í vandræðum vegna gíslamála 10. maí 2005 00:01
Uppreisnarmenn í Írak hafa nú bæði gísla frá Japan og Ástralíu í haldi sínu en það eru þau tvö lönd sem hvað staðfastlegast hafa staðið við bakið á Bandaríkjastjórn í Írak. Ríkisstjórnir beggja landa eiga í töluverðum pólitískum vandræðum heima fyrir vegna þessa. Einhver herskáasti uppreisnahópurinn í Írak, Ansar al-Sunna, fullyrðir að hann hafi í haldi sínu illa særðan Japana og hefur sett mynd af vegabréfi mannsins á Netið. Fjórir félagar mannsins, verktakar sem starfa hjá bresku öryggisfyrirtæki í Írak voru myrtir í árás í gær. Annar hópur uppreisnarmanna er með Ástralíubúa í haldi. Í síðustu viku sýndu þeir myndband af manninum sem þá hafði greinilega verið laminn og var með glóðarauga og hafði hárið verið rakað af honum. Hópurinn sagðist myndu myrða gíslinn ef Ástralíustjórn drægi hermenn sína ekki frá Írak. Fresturinn sem gefinn var rann út í morgun en ekkert hefur frést af örlögum gíslsins. Bæði Japan og Ástralía halda úti herdeildum í Írak og hafa verið dyggir stuðningsmenn Bandaríkjastjórnar bæði í innrásinni og hernáminu. Ríkisstjórnir beggja landa hafa ítrekað lýst því yfir að þær semji ekki við hryðjuverkamenn og muni aldrei verða við kröfum þeirra. Þessi mannrán hafa þó valdið nokkrum pólitískum væringum heima fyrir og magnað upp andstöðu innanlands við þátttöku landanna í þessu stríði. Gíslatökur Japana hafa vakið sérstaklega mikla athygli í Japan enda er japanski verktakinn sem nú situr í haldi mannræningja sjötti japanski gíslinn sem hefur verið rænt í Írak. Fimm hafa sloppið lifandi en japanskur bakpokaferðalangur var myrtur af mannræningjum á síðasta ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Innlent Katrín orðin stjórnarformaður Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Sjá meira