Guðjóni hefur fengið verri spá 10. maí 2005 00:01
Guðjóni Þórðarsyni og lærisveinum hans hjá Keflavík er spáð sjötta sæti Landsbankadeildarinnar í ár af kollegum þeirra í deildinni. Er þetta með því lægsta sem Guðjóni hefur verið spáð hingað til á hans þjálfaraferli, en þó ekki það allra lægsta. "Mér var spáð fallsæti þegar ég byrjaði með Skagann 1987. Eins höfðu menn ekki mikla trú á mér þegar ég fór til KA svo að þetta er bara skemmtilegt," sagði Guðjón í samtali við Fréttablaðið eftir blaðamannafund KSÍ í gær. "Markmið mitt er mjög einfalt - að gera Keflavík að það sterku liði að það verði mjög erfitt að vinna það," bætti Guðjón við fullur sjálfstraust og má leiða að því líkur að keppnismaðurinn Guðjón Þórðarson muni leggja allt í sölurnar í sumar til að hrekja þessari spá. "Auðvitað eru alltaf gerðar væntingar. Ég hef skilað góðum árangri með mín lið undanfarin ár og þó ég hafi ekki verið lengi í baráttunni hér heima tel ég það vera eðlilegt," segir Guðjón sem kveðst ekki finna fyrir meiri pressu nú en oft áður. "Ég er meðvitaður um að hlutirnir gerast ekki á einni nóttu. Ég hef aðeins verið hérna í nokkra mánuði og er að reyna að breyta hlutunum hægt og rólega en til þess að gera Keflavík að öflugu félagi þarf margt að breytast og bæta marga þætti," sagði Guðjón og nefndi umgjörð og marga aðra þætti sem lúta að félaginu í því sambandi. "Það er ennþá verið að móta liðin í deildinni og þar er Keflavík engin undantekning. Ég hafði í hendinni um daginn nokkra menn sem áttu að koma til mín en síðan gekk það úr skaftinu svo að ég þurfti aðeins að endurskipuleggja mig," sagði Guðjón og virðist meðvitaður um að leikmannahópur Keflavíkur þurfi á auknum liðsstyrk að halda fyrir sumarið. Hann telur spánna sem gerð var kunn í gær vera nokkuð raunsæja. "Ég tel að FH og KR séu með sterkustu leikmannahópanna og Hafnfirðingar unnu mótið í fyrra mjög verðskuldað. Þeir hafa bara verið að styrkjast svo að ég tel fullkomnlega raunhæft að þeim sé spáð sigri."
Íslenski boltinn Mest lesið Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni Körfubolti Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Íslenski boltinn „Bara pæling sem kom frá Caulker“ Fótbolti KR lætur þjálfarateymið fjúka Íslenski boltinn Bönnuðu öllum leikmönnum liðsins að koma inn í landið Sport „Vorum búnir að vera miklu betri“ Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Íslenski boltinn „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Fótbolti Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Enski boltinn Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Fleiri fréttir Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni „Bara pæling sem kom frá Caulker“ „Vorum búnir að vera miklu betri“ „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Markasúpur í „Íslendingaslögum“ KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Nýtt útlit hjá Guardiola Aflýstu æfingaferð eftir hræðilegar fréttir að heiman Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Bönnuðu öllum leikmönnum liðsins að koma inn í landið Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Eir Norðurlandameistari en fékk of mikla hjálp til að fá metið Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Sjá meira