Deila um lát leyniþjónustumanns 30. apríl 2005 00:01 MYND/AP
Harðar deilur eru sprottnar á milli Ítala og Bandaríkjamanna um rannsókn á dauða ítalsks leyniþjónustumanns í Írak. Ítalar hafa í kjölfarið skipað ríkissaksóknara landsins að hraða sinni rannsókn. Deilt hefur verið um aðdraganda þess að bandarískir hermenn skutu á bíl sem flutti blaðakonuna Guiliana Sgrena eftir að leyniþjónustumanninum Nicola Calipari tókst að frelsa hana úr hendi mannræningja. Skothríðin kostaði Calipari lífið og Ítalir vilja að þeim sem bera ábyrgð á því verði refsað. Bandaríkjamenn segja hermennina hafa farið eftir settum reglum og um það er deilt. Reynt hafði verið að ná sáttum um rannsókn málsins en nú er ljóst að það tekst ekki. Hermt er að Bandaríkjamenn hafi komist að þeirri niðurstöðu að framferði hermannanna sé ekki saknæmt. Ekki síst í ljósi þess að málið hefur valdið Silvio Berlusconi ómældum pólitískum erfiðleikum vilja ítölsk stjórnvöld nú að glæparannsókn fari fram. Í síðasta mánuði hóf ríkissaksóknari morðrannsókn og vilja stjórnvöld að henni verði hraðað. Þrír saksóknarar vinna að málinu og átján vísindamenn frá tæknideild lögreglunnar. Þeir munu meðal annars skoða bílinn sem skotið var á til að reyna að sannreyna hver skaut, hvenær, úr hvaða fjarlægð og á hvaða hraða bíllinn var. Ítalir segja að Bandaríkjaher hafi fengið að vita af ferðum bílsins með góðum fyrirvara. Þeir sem í honum sátu segja hann hafa verið á hægri ferð og að engar viðvaranir hafi verið gefnar áður en skothríðin hófst. Skotið hafi verið samfellt í næstum fimmtán sekúndur. Því hafna Bandaríkjamenn, segja að ljósmerki hafi verið gefin, bílstjóranum veifað og viðvörunarskotum hafi verið hleypt af áður en skotið var í vél bílsins til að stöðva hann. Sjónvarpsstöðin CBS segir gervihnattarmyndir til sem staðfesti að bíllinn var á 96 kílómetra hraða.
Erlent Fréttir Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Innlent Fleiri fréttir Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Sjá meira