Sport

Federer tapaði óvænt

Svisslendingurinn Roger Federer, stigahæsti tenniskappi heims, tapaði í dag mjög óvænt fyrir ungum Frakka, Richard Gasquet að nafni, á opna meistaramótinu í Monte Carlo. Federer hafði áður leikið 25 leiki án taps. Gasquet, sem er í 101. sæti á heimslistanum, sigraði leikinn í dag með tveimur settum gegn einu. Eftir að hafa tapað fyrsta settinu 6-7, vann hann næstu tvö 6-2 og 7-6. Gasquet mun mæta annað hvort Spánverjanum Rafael Nadal eða Argentínumanninum Gaston Gaudio í undanúrslitum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×