Mikill heiður fyrir Jón Arnór 13. apríl 2005 00:01
Körfuknattleiksmanninum Jóni Arnóri Stefánssyni hjá Dynamo St. Petersburg í Rússlandi hlotnaðist á dögunum sá mikli heiður að vera valinn í Stjörnuleik FIBA Europe sem fram fer á Kýpur í dag. Jón komst á spjöld sögunnar þegar hann var á mála hjá Dallas Mavericks í hinni víðfrægu NBA-deild í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum síðan en er nú að brjóta blað í sögu íslenskra körfuknattleiksmanna, því aldrei áður hefur Íslendingur náð þeim árangri að vera valinn í Stjörnuleik FIBA Europe. Jón er einn þeirra bakvarða sem valinn var í úrval Evrópubúa en liðið mætir úrvali erlendra leikmanna í Stjörnuleiknum. Jón Arnór er fyrrum lærisveinn Benedikts Guðmundssonar, núverandi þjálfara Fjölnis í Intersportdeildinni, en Benedikt var mjög spenntur fyrir afreki Jóns. "Hann er ekki að keppa við dónalega menn enda mikið af stórum nöfnum sem leika í Evrópu sem hafa t.d. verið að banka upp á NBA-dyrnar," sagði Benedikt. "Þetta er mjög mikil viðurkenning fyrir Jón og hans mesta afrek í vetur." Varðandi framtíð Jóns sagðist Benedikt ekki eiga von á að kappinn myndi fara í NBA á ný nema að þar biði hans hlutverk sem hann gæti sætt sig við. "Chicago Bulls sýndi honum áhuga áður en hann sagði skilið við Dallas og þá er Don Nelson ennþá áhugasamur um að fá hann til sín á nýjan leik. Jón mun þó ekki fara nema að hann fái að spila. Hann myndi eflaust sætta sig við að vera annar leikstjórnandi einhvers liðs. Hann hefur það mjög gott í St. Pétursborg og þetta snýst náttúrulega ekki bara um peninga. Menn vilja að sjálfsögðu spila," sagði Benedikt. Stjörnuleikur FIBA er í beinni útsendingu á Sýn.
Körfubolti Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Fleiri fréttir „Sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Holland - Japan | Hefja leik í hörkuriðli „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Sjá meira