Sport

Lék rúmar 4000 mínútur í röð

Það er óhætt að segja að Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson sé búinn að vera fastamaður í liði 1. deildarliðs Reading í vetur en hann varð af sínum fyrstu mínútum á leiktíðinni um síðustu helgi er honum var skipt af velli gegn Sunderland. Fram að þessari skiptingu hafði Ívar leikið 4195 mínútur í röð með Reading eða alla þá 46 leiki sem þeir voru búnir að leika í vetur. Hann var tekinn af velli í leik númer 47 sem er einstakt afrek í þessari sterku deild. "Auðvitað var ég vonsvikinn en aðallega var ég svekktur út í sjálfan mig fyrir að leika ekki betur," sagði Ívar í viðtali á heimasíðu Reading en stöðu hans á vellinum tók gamli Arsenal-jálkurinn Martin Keown. Ívar var skipt af velli á 56. mínútu en hann gaf Sunderland mark fjórum mínútum áður. Hann lék aldrei þessu vant ekki vel og því gat stjóri Reading, Steve Coppell, ekki annað en tekið hann af velli. "Ég gerði skelfileg mistök og ég tek markið algjörlega á mig. Stjórinn ákvað að taka mig af velli og ég ber virðingu fyrir þeirri ákvörðun hans. Ég mun reyna að forðast slík mistök aftur," sagði Ívar en sem betur fer fyrir hann skipti markið engu þegar upp var staðið þar sem félagar hans skoruðu tvisvar eftir að hann var farinn af velli og sigruðu leikinn. Það er mikið rætt um hvort Ívar verði í liðinu um næstu helgi en hann þótti sýna vanvirðingu með því að rjúka beint inn í göngin eftir skiptinguna. Hann kom þó fljótt aftur og settist á bekkinn. "Ég þurfti aðeins að anda nokkrum sinnum áður en ég fékk mér sæti. Ég var það svekktur. Vonandi verð ég samt í liðinu um næstu helgi," sagði Ívar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×