Páfi íhugaði afsögn 7. apríl 2005 00:01
Stöðugur straumur pílagríma, margir með útilegubúnað á bakinu, lá til Vatíkansins í Róm í gær og bættust í mannmergðina sem hefur flykkst til þessa minnsta sjálfstæða ríkis heims til að vera við útför Jóhannesar Páls II páfa, sem fram fer í dag. Um fjórar milljónir pílagríma höfðu í gær lagt leið sína að Páfagarði frá því páfi lést um síðustu helgi, að því er lögreglustjóri Rómaborgar greindi frá. Giskað er á að fimmti hver íbúi Póllands, hátt í tvær milljónir, hafi lagt leið sína til borgarinnar eilífu til að kveðja hinstu kveðju páfann sem var óskabarn - eða öllu heldur óskafaðir - pólsku þjóðarinnar. Upplýst var í gær að Jóhannes Páll II hefði í erfðaskrá sinni greint frá því að hann hefði íhugað afsögn á árinu 2000, er hann náði 80 ára aldri og heilsan var byrjuð að bila. Páfagarður birti erfðaskrána í heilu lagi í gær, eftir að lokið hafði verið við að þýða hana á ítölsku úr pólsku. Í erfðaskránni þakkar páfi öðrum trúarbrögðum, sem og vísindamönnum, listamönnum og stjórnmálamönnum, fyrir stuðning þeirra við ævistarf sitt. Páfi hóf að rita erfðaskrána mjög fljótlega eftir að hann settist á páfastól fyrir 26 og hálfu ári og hélt áfram að bæta við hana allan tímann. Fordæmislaust er hve margir leiðtogar annarra trúarbragða og kirkjudeilda verða við útför páfa í þetta sinn. Það hefu aldrei áður gerst að æðstu leiðtogar rétttrúnaðarkirkjunnar, armensku postulakirkjunnar og ensku biskupakirkjunnar verða við útför páfa. Jafnvel klerkastjórnin í Íran sendir sjálfan þjóðhöfingjann, og Ísrael utanríkisráðherrann og einn æðsta rabbína gyðingdóms. Í Tyrklandi, þar sem sárafáir rómversk-kaþólskir búa, hefur ríkisstjórnin ákveðið að fánar skuli dregnir í hálfa stöng - sem er athyglisvert þegar hugsað er til þess að í tyrkneska þjóðfánanum er íslamski hálfmáninn. "Hann var ekki aðeins leiðtogi hins kaþólska heims, hann var einnig leiðtogi fyrir friði og samræðu milli trúarbragða," lét Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, hafa eftir sér er hann lagði af stað til Rómar til að vera við útförina.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fleiri fréttir Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent