Vilja reykingabann eftir tvö ár 7. apríl 2005 00:01
Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem nú stendur yfir, leggur vinnuhópur veitingamanna fyrir fundinn í dag að tekið verði upp algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum1. júní 2007. Verði tillaga hópsins samþykkt teldist það til fárra undantekninga í heiminum að veitingamenn taki sjálfir frumkvæði að reykingabanni en það hefur hingað til komið frá stjórnvöldum vegna þrýstings frá heilbrigðisstéttum og þrýstihópum þeirra sem ekki reykja. Víða um lönd hafa veitingamenn mótmælt slíku banni af ótta við að missa viðskipti við reykingamenn. En hvað veldur þessari afstöðu veitingamanna sjálfra? Erna Hauksdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að í raun og veru hafi veitingamenn ákveðið að ganga fram fyrir skjöldu og taka þessa ákvörðun sjálfir. Þeir geri sér grein fyrir því að von sé á slíkum lögum víða um lönd og vilji fá tvö ár til að aðlagast slíkum lögum. Erna segir enn fremur að margir séu komnir mjög langt í þessum efnum og flestallir matsalir á betri stöðum séu orðnir reyklausir. Ákveðið hafi verið samhljóða á fundi veitingamanna að ganga til viðræðna við stjórnvöld um að bannið taki gildi vorið 2007. Bannið á einnig að ná til skemmtistaða og segir Erna að þar horfi menn á samkeppnisstöðuna. Staðirnir séu alla vega og ekki sé nokkur leið að skipta því niður hvar megi reykja og hvar ekki. Því séu menn fullkomlega sammála um að þetta gangi yfir öll fyrirtækin.
Fréttir Innlent Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Sjá meira