Fimm mál valda deilum á Ísafirði 6. apríl 2005 00:01
Málin sem Félag framhaldsskóla greinir menntamálaráðherra frá í bréfi um samskipti kennara Menntaskólans á Ísafirði og Ólínu Þorvarðardóttur skólameistara snúa að breyttum starfsskilyrðum kennara, áminningum og uppsögnum. Málin eru fimm. Fréttablaðið hefur vitneskju um fjögur þeirra. Eitt snýr að starfsmanni sem voru gefnir úrslitakostir um að fara í áfengismeðferð eða verða sagt upp störfum. Hann hafði þá hlotið áminningu. Annað snýr að starfsmanni sem ráðinn var yfir einn vetur en starfaði í tvær vikur við skólann og hvarf á braut. Telja kennarar að hann hafi lent í slysi og verið í veikindaleyfi fram að áramótum. Honum var sagt upp störfum. Þriðja málið varðar starfsmann sem vann hálft starf sem kennari og hálft sem námsráðgjafi. Starfshlutfall hans sem námsráðgjafi var hækkað í 75 prósent en lækkað aftur er annar námsráðgjafi var ráðinn við hlið hans. Starfsmaðurinn sætti sig ekki við það. Fjórða málið varð að dómsmáli sem tekið var fyrir í Héraðsdómi Vestfjarða í gær. Kennari gaf þrjátíu nemendum sínum níu og tíu í einkunn í ensku utan sex nemenda sem fengu átta. Rétt tæplega tuttugu nemendur þreyttu próf en aðrir höfðu áunnið sér einkunnina yfir veturinn. Skólayfirvöld fóru aftur yfir prófin og lækkuðu fimmtán einkunnir. Því vildi kennarinn ekki una. Félag skólameistara segir Ólínu ekki hafa farið út fyrir verksvið sitt í fjórum málanna en þeir geti ekki tjáð sig um mál sem sé fyrir dómi. Vinnustaðasálfræðingur er við störf í skólanum og sækja kennarar sem vilja til hans. Koma sálfræðingsins þykir bera vott um vilja Ólínu til sátta. Kennarar við skólann segja ákvarðanir Ólínu ekki helsta ágreiningsefnið heldur hvernig hún stóð að þeim. Einn vísaði í síðustu orð yfirlýsingar Félags framhaldsskólakennara um málið. Þar stendur: "[E]nginn efast um stjórnunarvald skólameistara. En góður stjórnandi setur reglur, leiðbeinir starfsfólki og verndar það, en síðast en ekki síst verður hann að vera meistari í mannlegum samskiptum."
Fréttir Innlent Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Sjá meira