Innlent

Farþegum fjölgar áfram

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 27 prósent í mars miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 99 þúsund farþegum árið 2004 í tæpa 125 þúsund farþega nú. Þetta kemur fram á heimasíðu flugstöðvarinnar. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 27 prósentum milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um 24 prósent. Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæplega 19 prósent það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra, eða úr rúmlega 252 þúsund farþegum í tæplega 300 þúsund farþega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×