Íslandsmótið í badminton í gær 3. apríl 2005 00:01
Skemmtilegu Íslandsmeistaramóti í badminton lauk í gær og segja má að þau Helgi Jóhannesson og Ragna Ingólfsdóttir úr TBR hafi verið sigurvegarar mótsins, því þau unnu bæði tvöfalt, bæði í einliða- og tvíliðaleik karla og kvenna. Ragna vann tvíliðaleikinn ásamt Söru Jónsdóttur og Helgi varð Íslandsmeistari í annað sinn í gær þegar hann sigraði í tvíliðaleik karla ásamt Brodda Kristjánssyni. Í tvenndarleik voru það systkinin Tinna Helgadóttir og Magnús Ingi Helgason úr TBR sem sigruðu glæsilega eftir æsilegan úrslitaleik við Helga Jóhannesson og Rögnu Ingólfsdóttur. Við náðum tali af Helga eftir að hann sigraði í einliðaleiknum, þar sem hann bar sigurorð af meistara síðasta árs, Tryggva Nielsen."Ég byrjaði ekkert að æfa að neinu viti fyrr en eftir áramótin síðustu. Ég var í skóla og hafði þess vegna ekki mikinn tíma til að æfa, en ég var alveg að hlaupa og lyfta og þannig lagað. Eftir áramótin hef ég hinsvegar verið að æfa alla daga og hef gert mikið af því að spila. Ég stefndi að því að toppa á þessu móti núna og það heppnaðist prýðilega. Ég átti alveg eins von á að ná að vinna í einliðaleiknum og það er í raun allt búið að ganga upp hjá mér um helgina. Sjálfstraustið var í fínu lagi og ég var bara að leika fínt badminton. Mér tókst að vera ákveðinn og þora að gera það sem ég lagði upp með, sem gekk allt upp, þannig að þetta gekk eins og í sögu. Leikirnir í dag voru mjög erfiðir og það má eiginlega segja að þetta hafi verið mjög erfitt mót. Það er því enn sætara að vinna þegar maður er í svona harðri keppni allt mótið," sagði Helgi. Ragna Ingólfsdóttir sigraði þriðja árið í röð í einliðaleik kvenna og við spurðum hana hvernig hún færi að því að vinna svona ár eftir ár. "Ég er búin að vera að æfa íþróttina síðan ég var 9 ára gömul og ég spilaði mjög mikið við bróður minn, sem gerði það að verkum að ég hafði alltaf mjög harða samkeppni. Mér hefur farið þokkalega mikið fram í ár held ég og það sem er að hjálpa mér mikið eins og í þessari keppni er það að ég er komin með talsverða reynslu, þó að ég sé ekki gömul. Ég er ekkert stressuð núna þó að ég sé að fara í keppni og svona reynsla er að skila manni ansi langt, því ef maður er stressaður er maður fljótur að gera mistök og það er dýrt," sagði Ragna.
Íþróttir Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fleiri fréttir Sara Rós og Nicolò heimsmeistarar Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Hermaðurinn Haukur í Stólana Amorim tekur við AC Milan Maður dagsins á HM: Bauðst að spila fyrir hitt liðið og á mág í landsliðinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Vann í „íslensku veðri“ og fagnaði með ís með pabba Landsliðsfyrirliðinn á leið í safaríferð til Tansaníu „Skyldan kallar hjá kærastanum“ „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna „Ég ætla að halda mig til hlés“ Dagskráin: Bestudeildarslagur á Akureyri Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn Íslenskt lið komið inn á heimsleikana í CrossFit „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Bráðaaðgerð var ekki á bingóspjaldinu mínu fyrir 2026“ „Sá að hann hleypti mér á hægri löppina og ég hikaði ekki við að skjóta“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Sjá meira