Sport

Vilhjálmur og Sólveig vörðu titla

Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, Karatefélagi Reykjavíkur, og Sólveig Sigurðardóttir, Þórshamri, vörðu í gær Íslandsmeistaratitla sína í kata í karate. Vilhjálmur Svan varð meistari í fimmta sinn en Sólveg hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari. Breiðablik sigraði í hópkata í karlaflokki en Þórshamar í kvennaflokki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×