Kaffærðir af Króötum 28. mars 2005 00:01
Íslenska landsliðið í knattspyrnu situr enn á botni 8. riðils undankeppni HM 2006 ásamt Möltu með eitt stig úr fimm leikjum eftir tap gegn Króötum, 4-0, í Zagreb á laugardaginn. Íslenska liðið, sem lék án síns besta manns, Eiðs Smára Guðjohnsen, átti aldrei möguleika gegn sprækum Króötum sem hefði með aðeins meiri einbeitingu getað unnið enn stærri sigur. Það er óhætt að segja að einn hlutur, einbeitingarleysi í föstum leikatriðum hafi gert gæfumuninn því íslenska liðið fékk á sig þrjú mörk eftir horn eða aukaspyrnur. Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hentu þriggja manna vörninni, sem hafði ekki gefið góða raun í undanförnum leikjum. fyrir róða og stilltu upp fjögurra manna varnarlínu í staðinn. Þessi breyting þeirra skilaði sér í því að íslenska liðið var þétt fyrir þegar Króatar voru með boltann og gaf fá færi á sér. Króatar náðu ekki að skapa sér nein færi að ráði úr opnum færum en þeir óðu hins vegar í færum þegar þeir fengu horn og aukaspyrnur. Íslensku leikmönnunum virtist gjörsamlega vera fyrirmunað að verjast almennilega og það var banabiti liðsins í leiknum. Sóknarleikur íslenska liðsins var, eins og búast mátti við í fjarveru Eiðs Smára, lamaður. Íslenska liðið fékk tvö færi, eitt í hvorum hálfleik, en fyrir utan það höfðu varnarmenn króatíska liðsins það afskaplega náðugt. Það verður þó ekki tekið af leikmönnum íslenska liðsins að þeir börðust eins og ljón allan leikinn. Liðið var mun þéttara varnarlega heldur en það hefur verið í síðustu leikjum en eins og áður sagði var það dekkningin í föstum leikatriðum sem fór með leikinn. Ásgeir og Logi hljóta að þurfa að velta því fyrir sér hvernig hægt er að vinna bug á því meini því íslenska liðið er ekki það gott að það geti sleppt því að dekka menn inni í teig.
Íslenski boltinn Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Mbappé sá um Senegal fyrir Frakka Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Sjá meira