Sport

Ferrari er hrokafullt, segir Ralf

Ástæðan fyrir bágri byrjun heimsmeistarans Michael Schumacher og félögum hjá Ferrariliðinu í Formúlu 1 kappakstrinum er fyrst og fremst hroki. Þetta fullyrðir Ralf Schumacher, ökumaður Toyota og yngri bróðir Michael. "Liðið hefur sjálft komið sér í þessa stöðu," sagði Ralf. "Hvernig geta menn þar á bæ verið svo hrokafullir að hefja tímabilið á gömlum bíl?" bætti hann við. Michael Schumacher, núverandi heimsmeistari, er í 11. sæti ökumanna eftir tvær keppnir. Hann er 14 stigum á eftir Fernando Alonso hjá Renault sem er í 1. sæti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×