Sport

Íslandsmótið í sundi

Fyrsta Íslandsmótið í sundi í 50 metra laug innanhúss var haldið í nýju Laugardalslauginni um helgina og tókst mótið með sannkölluðum sóma og Íslandsmetin féllu í hrönnum. Aðstæður til þessarar keppni hafa til þessa ekki verið góðar og mjög háðar veðri og vindum, en aðstandendur keppninnar um helgina eru sammála um að framtíðin í íslensku sundi sé afar björt með tilkomu þessa frábæra mannvirkis.Alls voru sett ellefu Íslandsmet á móti helgarinnar. Sveit Ægis setti met í 4x100 metra fjórsundi kvenna og bætti einnig Íslandsmetið í 4x100 metra skriðsundi kvenna. Karla- og kvennasveitir Ægis settu báðar Íslandsmet í 4x200 metra skriðsundi á laugardeginum. Jakob Jóhann Sveinsson og Anja Ríkey Jakobsdóttir úr sundfélaginu Ægi hlutu verðlaun á mótinu fyrir framúrskarandi árangur einstaklinga. Jakob Jóhann bætti eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi og setti einnig met í 50 metra bringusundinu, eftir geysilega harða keppni við Jón Odd Sigurðsson. Jakob var ekki sáttur við sjálfan sig í mótslok, þrátt fyrir að hafa sett 2 glæsileg met. "Ég var nokkuð sáttur eftir fyrri sundin, en ég er ósáttur við að hafa ekki náð að bæta metið í 200 metra bringusundinu. Það er kannski af því að ég var að synda svo mörg sund áður, en ég var allt of hægur í 200 metrunum," sagði þessi mikli keppnismaður.  Í kvennaflokki var það Anja Ríkey Jakobsdóttir sem varð hlutskörpust keppenda. Hún setti þrjú Íslandsmet, eitt í 100 metra baksundi og tvíbætti met í 50 metra baksundi, og fékk að launum Guðrúnarbikarinn fyrir bestan árangur í kvennaflokki á mótinu. "Ég hef stefnt á þetta mót síðan í ágúst í fyrra og er að toppa á hárréttum tíma. Ég er mjög sátt við að bæta þessi met enda bætti ég mig nokkuð vel. Ég hef æft eins og skepna og hef eiginlega ekkert gert annað en að æfa upp á síðkastið," sagði Anja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×