Fimleikar um helgina 20. mars 2005 00:01
Það var mikið um dýrðir í Laugardalshöllinni um helgina þar sem bestu fimleikamenn landsins voru saman komnir til að etja kappi . Það má segja að þau Kristjana Sæunn Ólafsdóttir og Viktor Kristmannsson úr Gerplu hafi verið sigurvegarar helgarinnar, en þau sigruðu í fjölþrautinni í karla og kvennaflokki. Viktor sigraði með nokkrum yfirburðum í karlaflokki og var sigur hans sérstaklega sætur því hann var að glíma við veikindi sem helltust yfir hann tveimur dögum fyrir keppnina og sagði hann í samtali við Fréttablaðið í gær að árangur hans hafi komið sér nokkuð á óvart þegar litið er til heilsufars hans á keppnishelginni. "Mér gekk svona þokkalega á gólfinu og á boganum, en svo náði ég að keyra bara nokkuð fínt í hinum greinunum svo að ég er ansi sáttur þrátt fyrir smá hnökra. Ég var líka rúmfastur tveimur dögum fyrir keppni og missti röddina og átti erfitt með að anda, svo að ég get ekki kvartað yfir árangrinum í fjölþrautinni", sagði Viktor. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir var einnig kampakát að lokinni keppni, þar sem hún sigraði eftir hörkukeppni við Sif Pálsdóttur úr Gróttu, en aðeins munaði hársbreidd á þeim stöllum í fyrsta og öðru sætinu. "Ég hefði geta gert aðeins betur í gólfæfingunum, en í heildina er ég mjög ánægð með sigurinn, því þetta var svo jafnt og spennandi", sagði Kristjana. Á laugardeginum tryggði sveit Stjörnunar úr Garðabæ sér sigur í keppni í hópfimleikum og hlutu 48,55 stig. Í öðru sæti varð sveit Gerplu með 45,85 stigog Björk varð í þriðja sæti með 44,95 stig
Íþróttir Mest lesið Segja Sölva hæðast að Bröndby Fótbolti Fékk flugeld í punginn í leik Fótbolti Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Enski boltinn Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fótbolti Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti Fá íþróttahæfileikana sína frekar frá móður sinni Sport Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Íslenski boltinn Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Körfubolti Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum Fótbolti Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Meiðsli Rodri verri en menn héldu Segir hetju Evrópumeistaranna ljúga Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Stórstjörnur Barcelona sektaðar fyrir brot á lyfjaprófsreglum „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Segja Sölva hæðast að Bröndby Fá íþróttahæfileikana sína frekar frá móður sinni Fékk flugeld í punginn í leik Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Tom Brady steyptur í brons Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, enskur fótbolti og fleira Fyrsti kvendómarinn í bandaríska hafnaboltanum Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Heimsmeistarar Chelsea lögðu Leverkusen í æfingaleik Njarðvíkingar á toppi Lengjudeildarinnar Celtics festa þjálfarann í sessi Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 2-1 | Heimakonur unnu Reykjavíkurslaginn „Þarf ekkert að ræða við dómarann enda norskan farin að ryðga“ Þór lagði Fylki og þjarma að toppliðunum í Lengjudeildinni Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Axel leiðir að öðrum degi loknum Hulda Clara ein á toppnum eftir dag númer tvö á Íslandsmótinu í golfi Jón Daði í hóp hjá Selfossi í fyrsta sinn í sumar Hlynur sigurvegari á Forsbacka Open í Svíþjóð Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United „Pele Palestínu“ drepinn á Gaza-ströndinni „Eigum von á því að fá þetta tjón að fullu bætt“ Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti