Sport

Williams sér fram á betri árangur

Lið Williams í Formúlu 1 kappakstrinum hefur fullyrt að bíll þess verði betri í næstu keppni sem fram fer í Kúala Lúmpúr í Malasíu 20. mars næstkomandi. Í fyrstu keppni tímabilsins, sem fram fór í Melbourne í Ástralíu, hafnaði Mark Webber í fimmta sæti en Nick Heidfeld datt úr keppni. "Það er eitt og annað á þróunarstigi og Michelin mun einnig mæta með tvo mismunandi hjólbarðategundir sem við munum prófa okkur áfram með. Ef þetta gengur jafn vel og í Melbourne þá verða engin vandamál," sagði Sam Michael, tæknistjóri Williams-liðsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×