Sport

Gerpla vann 11 bikara

Gerpla úr Kópavogi vann tvöfaldan sigur á Bikarmeistaramóti FSÍ í áhaldafimleikum sem fór fram um síðustu helgi og það voru ekki bara meistaraflokkar félagsins sem stóðu sig vel því Gerplan eignast einnig bikarmeistara í níu af ellefu fimleikastigum yngra fimleikafólksins. Ekkert fimleikafélag náði að vinna jafn marga bikara á Bikarmóti FSÍ síðan byrjað var að keppa eftir núverandi fyrirkomulagi og í þeim tilvikum sem félagið sigraði ekki hafnaði félagið í öðru sæti. Það er ljóst að félagið hefur tekið forystuna í íslenskum fimleikum á sínu 34. starfsári því þetta er í fyrsta sinn sem bæði karla- og kvennalið félagsins vinna bikarmeistaratitil í frjálsum æfingum og auk þess er heildarárangur félagsins afar glæsilegur – ellefu bikarmeistaratitlar á einni helgi. Karlaliðið vann bikarinn tíunda árið í röð. Sigurganga félagsins er óslitin frá Bikarmóti FSÍ árið 1996 en karlalið félagsins sigraði fyrst á bikarmóti 1991. Kvennalið félagsins vann hins vegar sinn fyrsta sigur síðan árið 1987. Gerplan er að byggja sér nýtt og glæsilegt íþróttahús í Salahverfi Kópavogs og með miklu betri aðstöðu er ljóst að fimleikaframtíðin er afar björt í Kópavoginum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×