Sport

Björgólfur Takefusa með þrennu

Fylkir vann Grindavík í miklum markaleik, 5-4, í Deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í Reykjaneshöll í dag. Sævar Þór Gíslason kom Fylkismönnum yfir á 12. mínútu en Óli Stefán Flóventsson jafnaði úr vítaspyrnu á þeirri 19. Þá var komið að þætti Björgólfs Takefusa, en fyrir leikhlé hafði hann gert þrennu. Fyrst skoraði hann á 22. mínútu, svo aftur á þeirri 27., og þá úr víti, og svo enn aftur á 43. mínútu og staðan 4-1 í hálfleik. Óskar Hauksson minnkaði muninn í 4-2 strax í upphafi síðari hálfleiks áður en Erik Gústafson kom Fylkismönnum í 5-2 hálftíma fyrir leikslok og flestir héldu þá að björninn væri unninn. En Eyþór Atli Einarsson var ekki á þeim buxunum og hann minnkaði muninn í 5-3 á 74. mínútu og svo í 5-4 fjórum mínútum fyrir leikslok og lokamínúturnar voru æsispennandi. Fylkismenn héldu þó haus og sigruðu 5-4.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×