Sport

Afhverju Frisk hætti

Sænski knattspyrnudómarinn Anders Frisk hefur staðfest að það hafi verði stuðningsmenn Chelsea sem gerðu útslagið í ákvörðun hans í að hætta að dómgæslu. Frisk dæmdi leik Barcelona og Chelsea í Meistaradeild Evrópu á Spáni fyrir tveim vikum og rak Didier Drogba af velli í umræddum leik. Þá ásakaði Jose Mourinho hann um að ræða við þjálfara Barcelona, Hollendinginn Frank Rijkaard, í hálfleik. Frá þessum leik hefur Frisk og fjölskylda hans borist fjöldi hótanna sem á endanum leiddi til þess að hann tilkynnti ákvörðun sína að hætta í. Þá tilkynnti hann einnig að það hefðu verið stuðningsmenn Chelsea hefðu gert útslagið í ákvörðun hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×