76ers í vandræðum 9. mars 2005 00:01
Lið Philadelphia 76ers í NBA deildinni er í vandræðum þessa dagana og tapaði illa fyrir lágt skrifuðum Golden State Warriors í nótt. Heimamenn í 76ers sáu aldrei til sólar í leiknum og töpuðu 104-85, þrátt fyrir 33 stig frá Allen Iverson, sem þrátt fyrir að vera lang stigahæstur í liðinu, setti vafasamt félagsmet með því að tapa boltanum 12 sinnum í leiknum. Í liði gestanna var Jason Richardson stigahæstur með 22 stig og Mike Dunleavy Jr skoraði 21. Liði Golden State gengur allt í haginn þessa dagana, eftir að hafa fyrir skömmu fengið til liðs við sig leikstjórnandann Baron Davis og virðist hann hafa hleypt nýju blóði inn í leik liðsins. Chris Webber á enn í miklum vandræðum með að fóta sig í liði Philadelphiu og náði sér alls ekki á strik í gær, hitti aðeins úr þremur af tólf skotum sínum utan af velli og var settur á tréverkið. Hann hafði fyrir leikinn átt fund með þjálfara sínum til að kvarta yfir ónógum spilatíma, en óvíst er að leikur hans í gær verði máli hans til stuðnings. Áhorfendur í Philadelphia bauluðu á Webber í gær og eru ósáttir við framlag hans síðan hann kom frá Sacramento í lok síðasta mánaðar, en það var von heimamanna að hann myndi gera liðið enn betra. Það er því ljóst að Webber á ekki sjö dagana sæla í Philadelphia þessa dagana og verður að taka sig á ef hann á ekki að falla í ónáð hjá kröfuhörðum stuðningsmönnum liðsins.
Körfubolti Mest lesið Shearer ósáttur við Isak: „Þú getur ekki gert þetta“ Enski boltinn Nýja stjarnan í þungavigtinni rotaði Whyte á innan við tveimur mínútum Sport Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Fótbolti Sjáðu hjólhestaspyrnu Richarlisons, markasúpu City og öll hin Fótbolti Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Körfubolti Forest kaupir tvo úr Evrópumeistaraliði Englands Enski boltinn Aðlögunar krafist eftir U-beygju Íslenski boltinn Í beinni: Chelsea - Crystal Palace | Heimsmeistararnir mæta til leiks Enski boltinn Jökull í Kaleo hitti stjörnur Rauðu djöflanna og spilaði á Old Trafford Enski boltinn Dagskráin í dag: Fyrsti risaleikur tímabilsins Sport Fleiri fréttir Misstu Egypta fram úr sér í seinni hálfleik Í beinni: ÍBV - Valur | Toppliðið í Eyjum Í beinni: Stjarnan - Vestri | Ný andlit og hörkuslagur Í beinni: Chelsea - Crystal Palace | Heimsmeistararnir mæta til leiks Eze og Guehi byrja hjá Palace þrátt fyrir óvissuna Nýja stjarnan í þungavigtinni rotaði Whyte á innan við tveimur mínútum Hafði ekki keppt í 376 daga en náði samt besta tíma ársins Shearer ósáttur við Isak: „Þú getur ekki gert þetta“ Forest kaupir tvo úr Evrópumeistaraliði Englands Aðlögunar krafist eftir U-beygju Sjáðu hjólhestaspyrnu Richarlisons, markasúpu City og öll hin Dagskráin í dag: Fyrsti risaleikur tímabilsins Eze hafi nú þegar náð samkomulagi við Tottenham Hetjan Arnór stýrði fjöldasöng eftir leik Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Brynjólfur tryggði dramatískan sigur Kane og Diaz tryggðu Bayern Ofurbikarinn „Hörku barátta tveggja góðra liða“ „Þakklát fyrir að vera uppalin í þessum klúbbi“ „Ætluðum ekki heim án sigurs“ „Loksins, tilfinningin er geggjuð“ Allt jafnt í fyrsta leik Orra og félaga Arnór og Ari skoruðu er Norrköping hafði betur í Íslendingaslag Öruggur sigur Börsunga gegn níu heimamönnum Hádramatík eftir að Willum kom inn á Úlfarnir steinlágu gegn City Draumabyrjun nýliðanna úr norðri | Muniz bjargaði Fulham Uppgjörið: FH - Breiðablik 2-3 | Blikar bikarmeistarar eftir framlengingu Daníel Tristan skoraði í stórsigri Sló fjörutíu ára gamalt mótsmet Sjá meira