Sport

NFL utan Bandaríkjanna?

Forráðamenn bandaríska fótboltans, NFL-deildarinnar, eru að íhuga að færa leiki í deildarkeppninni til staða utan Bandaríkjanna á komandi árum. Frá þessu skýrði Paul Tagliabue, framkvæmdastjóri deildarinnar, á blaðamannafundi í dag. Fundurinn var haldinn í tilefni af úrslitaleik NFL-tímabilsins, Super Bowl,  sem fram fer á sunnudaginn.  Tagliabue kynnti um leið hugmyndir deildarinnar um að halda æfingaleiki fyrir næstu keppnistímabil í Kína í aðdraganda næstu Ólympíuleika, sem fram fara í Bejing árið 2008. Einnig ítrekaði framkvæmdarstjórinn þá ætlun NFL-manna að koma liði á nýjan leik upp í Los Angeles, en stórborgin sú hefur verið án NFL-liðs síðan Rams og Raiders lögðu upp laupana fyrir um áratugi síðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×